Áburður og grassáning
Sumir vilja sléttan og þéttan grasflöt í garðinum. Aðrir vilja hafa hann gróskumikinn og "náttúrulegan." En hvað sem fólk kýs er skynsamlegt að huga vel að umhirðunni: bera áburð á gras og beð, slá og hreinsa illgresi.
GRÆÐIR 6
Tilbúinn áburður fyrir grasflatir.
Hlutfallið í efnainnihaldinu liggur nokkuð nálægt meðalþörf og ætti að viðhalda þörf jarðvegsins sé ekki um skort að ræða. Ráðlagður skammtur er um 40 gr. á m2. Berið á um leið og flötin er farin að grænka. Notist ekki á sumarblóm, rifsberjarunna og kartöflur. Athugið að ef grasflötin á að vera falleg og ræktarleg þá þarf að ná upp vexti grassins og því eykst tíðni sláttar.
GARÐAFOSFAT
Eykur matgæði matjurta.
Garðafosfat er fosforríkur áburður með köfnunarefni og er einkum notaður með blönduðum áburði þar sem fosfórskortur er. Fosfór er eitt af helstu næringarefnum jurta. Garðafosfat stuðlar að auknum undirvexti garðávaxta og styrkir rótarkerfi trjáa og grasa. Fosfór eykur þurrefnismagn og þar með matargæði kartaflna sem og annarra mat- jurta. Ef um mikinn fosfórskort er að ræða verða jurtirnar blágrænar og oft kemur á þær fjólublár litur.
Trjákorn
Tilbúinn áburður fyrir trjágróður.
Gefur fallegan blaðvöxt og styrkir rótarkerfið og því upplagður í trjágarða og á sumarbústaðalönd. Varast skal að bera áburðinn í miklum mæli á litlar plöntur og ætti þá frekar að nota Blákorn.
Ráðlagður skammtur fyrir tré er um 100 gr. hvern lengdarmetra trésins. Athugið að bera áburðinn ekki að stofninum.
Kalkkorn
Vinnur gegn súrnun jarðvegs og mosa.
Kalkkorn er kornað kalk og þægilegt til dreifingar á grasflatir.
Kalkið vinnur gegn súrnun jarðvegs og auðveldar plöntum upptöku annarra efna, auk þess heldur það mosa í skefjum. Ahugið að ekki ber að kalka kartöflugarða vegna kláðahættu, nema um mjög súran jarðveg sé að ræða. Einnig þrífast nokkrar tegundir skrautjurta best í súrum jarðvegi.
Blákorn
Góður alhliða áburður fyrir skrúðgarða.
Klórsnauður NPK-áburður með kalki, magnesíum, brennisteini og bór. Hentar vel í öll blómabeð, fyrir matjurtir, skrautrunna og tré. Inniheldur öll helstu næringar- og snefilefni. Ráðlagður skammtur er um 20 gr. á m2.
Berið á 3-4 sinnum yfir vaxtartímann frá maí fram í miðjan júlí.
Hvenær skal gera hvað?
Vaxtartími grasplöntunnar á Íslandi er 110 – 130 dagar. Grasvöxtur getur verið mikill framan af vaxtartímanum vegna góðra birtuskilyrða þ.e. mikil ljóstillífun.
Maí
Þegar jarðvegshitinn er orðinn 5 gráður verður starfsemi gerla og baktería næganleg til að hafa áhrif á vöxt grasplöntunnar. Þessar örverur umbreyta köfnunarefni (N) og öðrum efnasamböndum í upptakanleg efnaform fyrir grasplöntuna sem örva vöxt hennar. Við byrjum á Turbokalki sem kalkar og hemur mosann. Köfnunarefnið (N) í Turbokalkinu örvar grasvöxtinn. Viku seinna væri gott að setja á grasið Graskorn/Græðir 6, sem myndi styrkja rótar- kerfið. Gott er að sá Grasfræblöndu yfir á vorin til að viðhalda þéttri og þolinni gróðurþekju.
Júní-júlí
Rótarvöxtur dvínar á kostnað blaðvaxtar. Nýir blaðsprotar eru í hámarki. Grassvörðurinn nær mestum þéttleika á þessum tíma. Í þriðju viku í júni væri gott að dreifa Graskorni/Græðir 6.
Ágúst
Ljóstillífun minnkar með styttri birtutíma og blaðvöxtur verður mun minni. Í fyrstu viku ágústmánaðar er gott að enda áburðargjöf sumarsins á Graskorni/ Græðir 6.
Varast ber að nota of mikið og dreifa létt yfir. Mikilvægur vaxtartími rótarkefisins fer nú fram. Rætur stækka og safna forða til að undirbúa grasplöntuna fyrir veturinn.
September
Rótarvöxtur heldur áfram fram eftir hausti ef veðurskilyrði eru góð.
Október-apríl
Grasplantan er í dvala. Mjög hæg starfsemi grasplöntunnar gengur á orku- forða rótanna yfir veturinn. Mosi vex á góðum vetri.
Vor
Orkuforði grasplöntunnar er á þrotum. Grasplantan verður mjög viðkvæm fyrir traðki, hitasveiflum, vindkælingu og þurrki.
Verkfæri í garðinn
Nokkur góð ráð gegn mosa
Grisjið hávaxin tré og hleypið þannig birtu að grasflötinni.
Notið mosaeyði og/eða mosatætara til að fjarlægja mosann.
Gatið flötina og setjið 3-5 cm lag af sandi yfir.
Berið áburðarkalk (náttúrukalk) á grasflötina, u.þ.b. 15 kg/100 m2 og blákorn/graskorn u.þ.b. 5 kg/100 m2. Blákorn skal síðan bera á einu sinni í mánuði yfir sumartímann en skammturinn minnkaður um 1 kg í hvert skipti.
Í sumum tilvikum getur verið nauðsynlegt að leggja drenrör í lóðina til að minnka rakann í jarðveginum. Mosi dafnar best á rökum og skuggsælum stað.
Að lokum kemur hér gamalt húsráð: Látið krakkana leika sér á lóðinni og traðka mosann niður.
Grassáning
Hvenær berum við áburð á garðinn?
Gott er að bera á garðinn að vori þegar farið er að hlýja. Gott er að gefa tvisvar sinnum yfir sumarið, margir miða við miðjan maí og miðjan júní.
Hvernig berum við okkur að?
Það fyrsta sem við gerum er að taka okkur hrífu í hönd og byrjum á því að tæta upp mosann.
Við ýfum vel upp grassvörðinn, rökum saman mosanum og setjum hann í fötu og færum hann yfir í moltugerð.
Þar næst tökum við moldarpoka og grasfræ og sáum yfir flötinn.
Tökum kalk og graskorn og dreifum vel yfir grasflötinn.
Að endingu vökvum við garðinn með vatni.
