Leita
Innskráning
Sláðu inn símanúmer

Þjónusta

Komdu í viðskipti

Um vefverslun

Um vefverslun BYKO

Sendum samdægurs á höfuðborgarsvæðinu alla virka daga

BYKO.is er alltaf opið!
Við eflum heimsendingar úr vefverslun á höfuðborgarsvæðinu!

Pantanir úr vefverslun á höfuðborgarsvæðinu sem berast fyrir kl. 13:00 virka daga fara í útkeyrslu samdægurs með fyrirvara um að vara sé til í verslun Breidd. Mögulega gæti þurft að panta vöru úr vöruhúsi eða annarri verslun BYKO og getur afgreiðsla þá tekið lengri tíma en það á við í undantekningartilvikum. Viðskiptavinir verða látnir vita ef afgreiðslutími lengist.

Pantanir sem berast eftir kl. 13:00 fara í útkeyrslu næsta virka dag. Pantanir sem berast eftir kl.13 á föstudögum eru keyrðar út mánudag eða næsta virka dag hitti svo á.

Pantanir úr vefverslun sem fara út fyrir höfuðborgarsvæðið eru sendar með Eimskip eins hratt og mögulegt er.

Loftmynd af Reykjavík austur
Einfalt að panta & sækja

Teikning af farsíma, notendum og vefsíðu
Pappakassi fyrir heimsendar vörur
Flutningsgjöld, greiðslur og skilmálar
Vefverslun flutningsgjöld

Flutningsgjöld eru reiknuð út frá heildarþyngd pöntunar:

Lágmarksgjald er kr. 1.250 – annars fer flutningsgjald eftir þyngd og umfangi pöntunar.

Þessi flutningsgjöld eiga eingöngu við um vörur sem eru pantaðar í gegnum pöntunar- og greiðslukerfi vefverslunar BYKO.is

Vörur eru fluttar heim að dyrum þar sem Eimskip býður upp á þá þjónustu en annars er flutt á afgreiðslustað Eimskips. Stórar og fyrirferðamiklar vörur eru einnig sendar með Eimskip.

Vefverslun greiðslumöguleikar

Greiðslukort

​hægt er að versla með greiðslukorti í vefverslun BYKO og er sá valmöguleiki valinn á greiðsluþrepinu þegar er gengið frá pöntun. Greiðslukortanúmer er skrifað ásamt nafni korthafa, ekki er gjaldfært fyrr en pöntunin er afgreidd.

Netgíró

Hægt er að greiða fyrir vörur með Netgíró.

Reikningsviðskipti

Hægt er að versla á netinu í gegnum venjuleg reikningsviðskipti hjá BYKO fyrir þá viðskiptavini sem nýta sér slíkt. Viðskiptavinir þurfa að skrá sig inn á BYKO.is með rafrænum skilríkjum

Samanburður á lánum

Ef þú ert að íhuga að dreifa greiðslu í nokkra mánuði getur þú skoðað samanburð á lánum á Aurbjorg.is. Síðan birtir fleiri möguleika en greiðslukerfi BYKO býður upp á og er ekki beintengd við greiðsluferlið.

Vefverslun viðskiptaskilmálar

Þessi skilmáli gildir um sölu á vörum og þjónustu BYKO til neytenda.

Skilmálinn, sem staðfestur er með staðfestingu á kaupum, er grunnurinn að viðskiptunum.

Skilmálinn og aðrar upplýsingar á BYKO.is eru einungis fáanlegar á íslensku.

Um neytendakaup þessi er fjallað í lögum um neytendakaup, lögum um samningsgerð, lögum um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, lögræðislög og lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

Seljandi er BYKO , Skemmuvegi 2, 200 Kópavogi, kennitala: 460169-3219, virðisaukaskattsnúmer 3394. Byko ehf. er skráð í Firmaskrá Íslands. Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikning. Kaupandi verður að vera orðinn að minnsta kosti 16 ára til að versla á www.BYKO.is

Pöntun er bindandi þegar hún er skráð á netþjón seljanda. Það gerist þegar kaupandi hefur staðfest pöntun í skrefi 3. Seljanda er einnig gert að afgreiða pöntun kaupanda svo lengi sem hún er í samræmi við vöruúrval og verðlagningu. Allar pantanir þar sem grunur um að brögð séu í tafli og/eða þar sem hugbúnaðargalli hefur áhrif eru afturkallaðar. Kaupandi hefur rétt á að rifta kaupum samkvæmt lögum um neytendakaup, sjá nánar í grein 11.

Seljandi sendir kaupanda staðfestingu þegar pöntun er skráð, þó aðeins ef kaupandi hefur skráð netfang sitt við kaupin. Kaupanda er bent á að kynna sér gaumgæfilega pöntunarstaðfestingu þegar hún berst. Einnig ætti að ganga úr skugga um að hún sé í samræmi við fyrirhugaða pöntun. Frávik frá pöntun og pöntunarstaðfestingu skal túlkað sem nýtt tilboð frá seljanda sem að hægt er að afþakka eða samþykkja. Kaupandi hefur einnig rétt til að láta upprunalega pöntun gilda svo lengi sem hún er í samræmi við það sem seljandi bauð upp á og að tiltekin vara sé til að lager.

Seljandi veitir upplýsingar um vörur eftir bestu vitund hverju sinni. Seljandi birtir allar upplýsingar með fyrirvara um bilanir, vírusa, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum. Vöruúrval getur verið mismunandi milli vefverslunar og verslana. Ennfremur áskilur seljandi sér rétt til að ógilda í heild eða að hluta til pöntun kaupanda ef varan er uppseld. Undir þeim kringumstæðum fær kaupandi tilkynningu ásamt upplýsingum um hvað gæti mögulega hentað í staðinn. Kaupandi fær þá möguleika á að samþykkja þá tillögu eða aflýsa pöntun í heild sinni.

Verð á vef og í verslun kunna að hækka og lækka vegna samkeppni og verðbreytinga birgja. Verðhækkanir sem verða eftir pöntun viðskiptavinar eru ekki afturkræfar. Það verð gildir sem var í gildi þegar pöntun var gerð og kemur fram á pöntunarstaðfestingu. Heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir pöntun endanlega (skref 3 í vefverslun). Þar er tekinn fram allur kostnaður við pöntun s.s. þjónustu, sendingu o.s.frv. Aðeins sértilfelli geta haft með sér aukakostnað eftir pöntunarstaðfestingu. Sem dæmi má nefna eru bilanir, vírusar, prent-, birtingar- og innsláttarvillur í texta, verðum og myndum.

Hægt er að inna greiðslu af hendi með greiðslukorti, Netgíró eða með reikningsviðskiptum hjá viðskiptavinum sem eru í reikningsviðskiptum hjá BYKO. Ef greitt er með greiðslukorti er upphæðin skuldfærð við afgreiðslu pöntunarinnar af lager. Ef greiðsla berst ekki, áskilur seljandi sér rétt til að aflýsa pöntuninni.

Afhending telst vera innan eðlilegra tímamarka frá útgáfudegi reiknings. Tekið er fram í kaupferlinu hverju má búast við miðað við valda sendingarleið. Seljandi afhendir vörur einungis innan Íslands. Ef afhendingu seinkar mun seljandi tilkynna það til kaupanda ásamt upplýsingum um hvenær pöntunin verður tilbúin til afhendingar eða bjóða staðgengilsvörur ef varan er uppseld. Allar pantanir yfir kr. 20.000 krefst undirskriftar reikningseiganda gegn framvísun persónuskilríkja þ.e. passa eða ökuskírteinis. Pantanir undir kr. 20.000 eru afhentar aðila á afhendingarstað. Ef að enginn er við er pöntun stungið inn um bréfalúgu ef kostur er. Allar skemmdir á vörum af hendi flutningsaðila eru á þeirra ábyrgð og að fullu bætt gagnvart viðskiptavini. Skemmdir eftir að vara hefur verið afhent er á ábyrgð kaupanda. Ef að afhending vöru í heimakstri reynist árangurslaus er hægt að óska eftir nýjum afhendingartíma. Ef að afhending reynist árangurslaus í annað skiptið er vara tekin í geymslu þar til hún er sótt. Geymslutími miðast við 2 vikur og eftir það áskilur BYKO sér rétt til að rifta kaupum. Ef aðstæður krefjast þess að varan sé geymd er krafist mánaðarlegs geymslugjalds sem nemur um 5% af upphæð vörunnar.

Eftir að kaupandi hefur móttekið pöntunina þarf hann að kanna hvort hún sé í samræmi við pöntunarstaðfestinguna, hvort eitthvað hafi skemmst í flutningi og að allar vörur séu samkvæmt vörulýsingu og ógallaðar. Skilmálar þessir gera ráð fyrir að kaupandi hafi lesið og kynnt sér leiðbeiningar og/eða handbók sem fylgja keyptri vöru við afhendingu. Eðlilegur athugunartími viðskiptavinar telst vera innan 30 daga. Eftir 30 daga áskilur seljandi sér rétt til að sannreyna staðhæfingu kaupanda innan eðlilegra tímamarka áður en leyst er úr umkvörtunarefni kaupanda. Í flestum tilfellum felur það í sér athugun hjá viðurkenndum þjónustuaðila.

Ef að varan er gölluð eða það vantar eitthvað í vöruna er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Það fer eftir atvikum hvaða leið er valin hverju sinni. Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Mælt er með að tilkynningin berist innan 30 daga frá því galli uppgötvast. Vegna skráningargildis er mælt með að kaupandi sendi tölvupóst um gallann og geymi afrit. Seljandi sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins. Réttur til að fá galla bættan er í 2 ár fyrir rafmagnstæki. Réttur til að kvarta er 5 ár, þó aðeins á vörum sem eru með viðurkenndan meðallíftíma umfram 2 ár. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð, þó innan eðlilegra tímamarka.

Valmynd