Hvað viltu finna hér?

Karfan þín er tóm

Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu

Stofnaðu rafrænt BYKO kort á einni mínútu

Svona ferð þú að:

1. Innskráning á MITT BYKO með rafrænum skilríkjum.

2. Smelltu á flipann úttektaraðilar.

3. Sláðu inn kennitölu og símanúmer úttektaraðila og smelltu á bæta við úttektaraðila.

4. Úttektaraðili fær þá sms með hlekk á rafræna BYKO kortið sitt.

5. Úttektaraðili vistar kortið í símaveskinu sínu.

Af hverju ætti ég að stofna rafrænt BYKO kort?

Þægindi

Þú getur auðkennt þig sem úttektaraðila í sjálfsafgreiðslu.

Einfalt að stofna nýja úttektaraðila á MITT BYKO sem mega versla á tiltekinni kennitölu.

Við stofnun úttektaraðila fær viðkomandi rafrænt BYKO kort sent sjálfkrafa í SMS.

Týnist ekki þar sem þú geymir það í símaveskinu þínu.

Tímasparnaður

Sjálfsafgreiðsla flýtir fyrir og sparar dýrmætan tíma.

Starfsmaður þarf ekki að auðkenna úttektaraðila, hvorki í sjálfsafgreiðslu né á kassa.

Kortið er skannað inn eins og hver önnur vara, hvenær sem er í ferlinu áður en greitt er fyrir kaupin eða sett í reikning.

Öryggi

100% stjórn á því hverjir geta tekið út á reikninginn þinn.

Með sjálfvirku upplýsingaflæði er komið í veg fyrir vitlausar skráningar og innsláttarvillur.

Dýnamískur kóði á rafræna BYKO kortinu tryggir öryggi. Kóðinn virkar þegar búið er að uppfæra í veskinu (refresh).

Valmynd