Í samstarfi við Finneasy í Finnlandi býður BYKO nú upp á Easy Swing gripabursta af ýmsum stærðum án mótora. Burstarnir henta gripum allt frá ungum kálfum upp í fullorðin naut. Einnig er mögulegt að nota þá í hesthús.
Burstarnir eru smíðaðir með mikið álag í huga. Easy Swing gripaburstarnir eru auðveldir í uppsetningu og kosta mun minna en rafmagnsdrifnir kúaburstar.
Góðir bændur vita að skepnum líður betur með hreinan feld og eru laus við kláða. Mjólkurkúm sem líður vel mjólka betur en kúm sem líður illa. Með aðgangi að góðum gripaburstum er líklegra að framleiðslan verði meiri en ella.
Burstarnir koma ósamsettir, en auðvelt er að setja þá saman og festa þá við vegg eða staura.
Kúabursti EasySwing Maxi - Vörunúmer: 907200001
Maxi er stærsti og öflugasti gripaburstinn, og er ætlaður fullorðnum nautgripum.
Kúabursti EasySwing Midi - Vörunúmer: 907200003
Midi burstinn hentar fyrir kvígur og kýr, en einnig er hann hentugur fyrir hross.
Kúabursti EasySwing Mini - Vörunúmer: 907200004
Mini burstinn er einkar hentugur fyrir kálfa og ungar kvígur, og jafnvel sauðfé.
Hér má finna nokkur myndbönd með upplýsingum og leiðbeiningum fyrir EasySwing burstana:
Skemmuvegi 2a
200 Kópavogur
Kt. 460169-3219
Vsk.nr. 03394