Litaval setur tóninn í allri hönnun og leggur grunnin að fallegu rými. Jóhanna Heiður litaráðgjafi BYKO veitir faglega ráðgjöf við val á rétta litnum fyrir þitt rými.
Jóhanna Heiður Gestsdóttir innanhúshönnuður veitir viðskiptavinum litaráðgjöf í nýju og bættu sýningarrými málningardeildar BYKO Breidd. Í litaráðgjöfinni er unnið með raunverulegar litaprufur auk þess sem að breyta má birtuskilyrðum í sýningarrými sem er ný og ekki hvað síst nauðsynleg nálgun þegar velja á liti á rými.
Litaval er persónubundið og upplifun á litum ólík og mikilvægt að litaval miðist út frá óskum hvers og eins.
Innifalið er
- 30 mínútna viðtal við Jóhönnu sem fer fram í verslun BYKO Breidd.
- Farið yfir þær hugmyndir sem viðskiptavinur er með um rýmið, kostur ef viðskiptavinur er með myndir af rýminu.
Komdu í heimsókn til okkar í BYKO Breidd og við ráðleggjum þér með litaval. Gott er að koma með mynd af rýminu sem á að nota.
Komdu með þinn lit (t.d. litur af uppáhalds hlut eða flík) og litaskanninn finnur litinn.
- Ný og stærri mánlingardeild
Hvernig stemningu viltu skapa í þínu rými? Á að velja ljósa liti eða dökka? Í hvaða átt snýr rýmið og hvað annað er þar inni?
Skemmuvegi 2a
200 Kópavogur
Kt. 460169-3219
Vsk.nr. 03394