Garðslátturinn
Fallegum garði er vel við haldið og sláttur er stór partur af þessu viðhaldi. Í BYKO færðu allt sem þú þarft til að viðhalda garðinum.
Kynnið ykkur gott úrval sláttuvéla
Sláttuorf á góðu verði
Áður en hafist er handa við grassláttinn er mikilvægt að yfirfara þau verkfæri sem þarf í verkið. Gott er að skipta um olíu á sláttuvélinni og brýna vel hnífana. Einnig er brýnt að fylla ekki eldsneyti á vélina á grasinu sjálfu.
Áður en byrjað er að slá er gott hreinsa burtu gamlar plöntuleifar, mosa, steina, rusl og aðra óæskilega hluti úr garðinum sem gætu skemmt sláttuvélarnar.
Í fyrsta garðslætti er grassvörðurinn afar viðkvæmur og því er ráðlagt að stilla sláttuvélina í hæstu stillingu.
Forðast skal að slá niður í rótarháls þar sem það skaðar grassvörðinn
Mælt er með að nota breytilegar sláttustefnur til að jafna álagið á grasfletinum.
Að slætti loknum er mikilvægt að raka saman heyinu sem eftir situr á fletinum. Ef grasið liggur of lengi þá getur það súrnað og skemmt flötinn.
Mikilvægt er að þrífa sláttuvélina strax til þess að hámarka endingu hennar.
Hekkklippur og hekksnyrtir
BYKO er með allt í garðvinnuna, allt frá fatnaði í garðáhöldin
Napoleon er kanadískt fjölskyldufyrirtæki sem hefur sérhæft sig frá árinu 1995 í framleiðslu hágæða grilla sem hafa sannað sig með einstaklega löngum líftíma og ótal skemmtilegum eiginleikum þegar kemur að notkun þeirra. Mikil áhersla er lögð á fyrsta flokks efni við smíði þeirra.
Kynntu þér Napoleon
Skemmuvegi 2a
200 Kópavogur
Kt. 460169-3219
Vsk.nr. 03394