Innskráning
Sláðu inn símanúmer

Góð ráð

Pallur og garður

Napoleon grill

Napoleon grillin

Það er fátt betra en góður grillmatur. En grillið er samt svo miklu meira en bara tæki til að elda mat. Því fylgir alveg sérstök stemning og útivera, það leiðir fólk saman og býr til notalegar stundir með fjölskyldu og vinum. Napoleon hefur um áratugaskeið framleitt hágæða grill sem hafa sannað sig með einstaklega löngum líftíma og ótal skemmtilegum eiginleikum þegar kemur að notkun þeirra.

Grillveisla fyrir fjölskylduna
Gæði alla leið

Napoleon grillin eru smíðuð úr fyrsta flokks efnivið, eins og ryðfríu stáli sem þolir einstaklega vel hita, högg, veður og tæringu. Þá er steypt ál líka gjarnan notað, en það ryðgar ekki. Engin sterk eða heilsuspillandi efni eru notuð við framleiðsluna hjá Napoleon. Grillin eru smíðuð eins og við viljum hafa þau – tæki sem endast og endast og ryðga ekki!

Grillin sjálf eru byggð úr ryðfríu stáli
SIZZLE ZONE™

Innrauða „SIZZLE ZONE™“ svæðið gjörbreytir eldamennskunni. Það hitnar upp í allt að 800° gráður og lokar þannig kjötinu og brúnar það fullkomlega.

Þessi tækni hefur lengi verið notuð á veitingastöðum en er nú loks aðgengileg almenningi. Kjöt sem er grillað á þennan máta heldur allt að 35% meiri safa en það sem eldað er með hefðbundnum leiðum. Nú er það leikur einn að fá fallegt og bragðmikið „kröst“ á steikina.

Sizzle Zone fer upp í 800° gráðu hita
BYLGJURNAR

Það sést ekki bara utan á grillinu að það sé frá Napoleon. Grindurnar sem bylgjast inn í því eru líka orðnar vel þekktar á meðal matgæðinga.

En bylgjurnar eru ekki bara gerðar fyrir augað heldur gegna ýmsum hlutverkum. Þær stuðla að jafnari hita, koma í veg fyrir að minni bitar detti af grindinni og auðvelda þrifin á grillinu. Í raun má segja að grindurnar séu nærri viðhaldsfríar, enda gerðar úr ryðfríu og sterku stáli.

Grillgrindurnar eru auðþekkjanlegar en þær bylgjast ólíkt en á öðrum grillum
Veldu þitt grill

Napoleon grillin koma í öllum stærðum og gerðum. Hvað grill er þitt grill?

Brennarar

Brennararnir eru í raun hjarta grillsins. Þess vegna er vandað til verks – með einstöku framleiðsluferli og vísindi að vopni.

Brennararnir eru gerðir úr styrktu, ryðfríu stáli með það fyrir augum að búa til einstaklega endingargóða vöru. Þeir þola bæði gríðarlegan hita og allt það sem fylgir því að elda mat: fitu, vökva, reyk, salt o.s.frv. 

Hvaða annar framleiðandi getur svo lofað því að hægt sé að keyra yfir brennarana á vörubíl án þess að þeir skemmist?

Brennararnir dreifa hitanum jafnt og vel en eru engu að síður hagkvæmir þegar kemur að gasnotkun. Mikil vinna hefur verið lögð í hönnun þannig að fullkomið jafnvægi náist á milli orkunotkunar og hita. Næst það einnig fram með hönnun á grillinu sjálfu: Einangrun, flæði loftsins og efnisnotkun.

Napoleon grillin eru útbúin sterkum brennara
Lok er ekki bara lok

Meira að segja lokin á Napoleon grillunum byggja á einstöku hugviti. Þau eru fest nær miðjunni en hefðbundið er og opnast ekki aftur á bak eins og á öðrum grillum.

Lokið tekur minna pláss þegar það er opið og mun auðveldara er að opna það og loka. Með hönnuninni heldur grillið líka hitanum betur svo maturinn fær jafnari eldun. Þá er engu til sparað þegar kemur að smíði þess, hönnun og val á efnivið.

Lokið er traust, vel smíðað og heldur hitanum vel
Grillljósin

Napoleon Prestige PRO™ grillin koma öll með innbyggðri lýsingu. Segjum bless við vasaljósið í símanum!

Líftími LED ljósanna í grillinu er mjög langur og hægt er að stýra lit og birtustigi þeirra. Ljósin slokkna svo sjálfkrafa ef þú gleymir þér yfir máltíðinni sjálfri. Þannig verður auðvelt að grilla þegar rökkva tekur – allt árið um kring!

Í Prestige grillunum eru innbyggð ljós
Fylgihlutir fyrir grillið

Með góðu viðhaldi á grillinum lengjum við líftíma þess til munar. Svo má ekki gleyma helstu áhöldunum heldur!

Til þess að grillið endist lengur er mikilvægt að sinna reglulegu viðhaldi
Uppskriftir

Hér eru nokkrar bragðgóðar uppskriftir - fullkomnar á nýja grillið þitt!

Valmynd