Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu

Þjónusta

Mannauður

Vinnustaðurinn

Vinnustaðurinn

Árið 1962 opnuðu Guðmundur H. Jónsson og Hjalti Bjarnason 135 fermetra byggingavöruverslun við Kársnesbraut í Kópavogi. Í upphafi var einungis verslað með grófvöru en innan árs var opnuð smávöruverslun. Í gegnum árin hefur félagið aðlagað sig að breyttum efnahagsumhverfi, markaðsáherslum, neytendahegðun og helstu nýjungum í verslun og þjónustu.

Starfsfólk að störfum við áfyllingar í verslun

Um BYKO

BYKO er fjölskyldufyrirtæki og skilar það sér í menningu félagsins. Hjá BYKO starfar fjölbreyttur hópur fólks af fagmennsku, framsækni og með gleðina í fyrirrúmi. Markmið okkar er ávallt að veita viðskiptavinum okkar og starfsfólki bestu heildarupplifunina af BYKO.

Við hjá BYKO trúum við því að starfsfólkið okkar sé okkar mikilvægasta auðlind til að ná árangri. Því hefur félagið sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun starfsfólks af BYKO sem vinnustað. Lykillinn að því að fá gott starfsfólk til starfa er að hafa gott orðsport, sterka ímynd og vinnustað sem starfsfólk mælir með. Framtíðarsýn okkar vinnur að því markmiði.

Starfsfólk við störf í BYKO

"Great Place to Work"

Við erum stolt af því að vera vottuð sem frábært vinnustaður af Great Place to Work. Við leggjum áherslu á að stuðla að trausti, vellíðan og helgun meðal okkar starfsfólks og er vinnustaðagreining Great Place to Work okkar verkfæri í þeirri vegferð.

Við leggjum áherslu á að mæta starfsfólki okkar þar sem það er á hverjum tíma. Fríðindi starfsfólks stuðla að heilbrigðari vinnustaðamenningu þar sem er sveigjanleiki og góð samþætting á vinnu og einkalífi.

BYKO hefur fengið vottun á jafnlaunakerfi sitt og hefur með því skuldbundið sig til að greiða starfsfólki sem sinna sömu eða sambærilegum störfum sambærileg kjör. Félagið undir gengur árlega úttekt af utanaðkomandi óháðum aðila til að viðhalda vottun félagsins.

Starfsfólk BYKO

Við bjóðum upp á

- Samgöngustyrk
- Velferðarstyrk
- Aðgang að velferðarþjónustu Heilsuverndar
- Líkamsræktartyrk
- Fjárhagslegan styrk í allt að þrjá mánuði í fæðingar- og foreldraorlofi
- Frí rafbílahleðsla á flestum starfsstöðvum
- Sturtuaðstöðu á starfsstöðvum
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt starfsumhverfi
- Niðurgreiðsla á hádegismat
- Afsláttur á vörum í verslun
- Árshátíð og haustfögnuð
- Jólagjöf og páskagjöf
- Gjafir vegna starfsaldurs
- Fjarvinnu hluta úr viku fyrir störf þar sem það er möguleiki

Starfsfólk við störf sín í verslun okkar Breidd

Laus störf

Viltu ganga í hópinn?

Á vefnum finnur þú auglýst laus störf hjá BYKO Einnig getur þú sent inn almenna umsókn ef þig langar að slást í hóp frábærs starfsfólks á skemmtilegum vinnustað.

Skoða störf

Í BYKO vinnur frábært teymi starfsfólks
Valmynd