Almennir ábyrgðarskilmálar
- Allar vörur eru seldar með fullri ábyrgð samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003.
- Ábyrgð miðast við dagsetningu kaupnótu.
- Kaupnóta er nauðsynleg þegar staðfesta þarf ábyrgð.
- Ábyrgð nær ekki til eðlilegs slits.
- Ábyrgðin fellur úr gildi ef rekja má bilun til illrar eða rangrar meðferðar.
Skilaréttur
- Heimilt er að skila vöru gegn framvísun reiknings innan 30 daga frá kaupum.
- Varan skal vera heil og í óskemmdum umbúðum.
- Parketi og flísum fæst eingöngu skilað í heilum og óopnuðum pökkum.
- Niðurmældri vöru og ljósaperum fæst ekki skilað.
- Við skil á vöru er gefin út inneignarnóta sem gildir í eitt ár frá útgáfudegi.
- Við skil á vöru er miðað við upprunalegt söluverð vörunnar á nótu.
- BYKO áskilur sér rétt til að draga 10% af upprunalegu verði þegar vöru er skilað.
Viðskiptaskilmálar
- Varan er eign BYKO þar til kaupverð hefur verið að fullu greitt.
- Raðgreiðslusamningar, reikningsviðskiptieða önnur lánaform afnema ekki eignarétt BYKO fyrr en fullnaðargreiðsla hefur verið innt af hendi.
- Gjalddagi reiknings vegna reikningsviðskipta er 1. dag mánaðar.
- Eindagi reiknings er 20. dag mánaðar.
- Dráttavextir reiknast eftir eindaga frá og með gjalddaga reiknings.
Lagning gólfefna - nokkur atriði sem þarf að hafa í huga
Að uppgötva galla eftir að gólfefnið hefur verið lagt á gólf getur reynst kaupanda vörunnar dýrkeypt ef hann hefur ekki framfylgt faglegu eftirlitshlutverki við lögnina. Kaupandi vörunnar má búast við því að þurfa að bera tjónið sjálfur.
Parket, sjáanlegir gallar:
- Fylgjast þarf vel með að borð falli vel saman og ekki sé hæðarmismunur milli borða.
- Skoða þarf hvert borð vandlega áður en það er lagt og leggja það til hliðar ef eitthvað er athugavert.
- Mikilvægt er að lýsing sé góð þannig að almennir gallar eða glansmismunur milli einstakra borða fari ekki framhjá lagningarmanni.
- Ef hafna þarf parketborði skal það gert áður en það er lagt.
- Ganga þarf úr skugga um að rétt vörutegund hafi verið afhent áður en lagning hefst.
Flísar, stærðir og litir:
- Flísar eru almennt framleiddar í lotum. Lita- og stærðarmunur er á milli framleiðslulota. Framleiðendur stimpla litanúmer á pakkana í samræmi við framleiðslulotu.
- Mikilvægt er að lýsing sé góð þannig að almennir gallar eins og litamunur, stærðarmunur eða aðrir sjáanlegir gallar fari ekki framhjá lagningarmanni.
- Kaupandi þarf að bera saman litanúmerið á kössunum því það er mjög áríðandi að allar keyptar flísar séu úr sömu framleiðslulotu.
- Ef hafna þarf flísum sökum litamunar, stærðar eða annarra athugasemda skal það gert áður en þær eru lagðar.
- Ganga þarf úr skugga um að rétt vörutegund hafi verið afhent áður en lagning hefst.
Geymslugjöld sérpantana
- Geymslugjald reiknast 7 dögum eftir tilkynningu um komu vöru.
- Geymslugjald á einu EURO bretti: 500 kr á dag (Vnr. 095).
Gámaleiga
- Gámaleiga reiknast 14 dögum eftir tilkynningu um komu gáms.
- Gámaleiga á 40 feta gámi: 6.130 kr á dag (Vnr. 028).
- Gámaleiga á 20 feta gámi: 4.595 kr á dag (Vnr. 027).