Leita
Innskráning
Sláðu inn símanúmer

VNR. 80605731

GJÖCO GÓLFLAKK VATN 05 3,0L

Fljótþornandi, lyktarlítið og slitsterkt vatnslakk til notkunar á allt tréverk innandyra. Pensla með lakkpensli eða rúlla með svamprúllu í meðalþykku lagi svo það fái að fljóta á yfirborðinu og dreifa úr sér, með því jafnast jafnóðum úr öllum rákum sem gætu myndast. Ef verið er að lakka ómeðhöndlaðan við er ráðlag að renna yfir hann fyrst með fínum sandpappír (120-180) og þynna fyrstu umferðina með vatni ca. 20-25%. Eftir að fyrsta umferðin er orðin þurr (ca. 5 klst) er ráðlagt að renna létt yfir yfirborðið með sandpappír í grófleika 320-400 eða stálull 000-0000 svo næsta umferð bindist betur við. Ef verið er að lakka ólakkaðan við þá er ráðlagt að fara 2-3 umferðir annars er 1-2 nóg og þá er líka óþarfi að þynna fyrstu umferðina.

dós

Valmynd