Leita
Innskráning
Sláðu inn símanúmer

Góð ráð

Litakort Friðriks Ómars

Litakort Friðriks Ómars

Í samstarfi við BYKO setti Friðrik Ómar saman skemmtilegt litakort. Litirnir sex eru innblásnir af uppáhalds tónlistarfólki hans og þeim hugrenningatengslum sem skapast á milli lita og tóna.

Friðrik Ómar ræðir við litaráðgjafa
Friðrik Ómar í Hörpunni
Litaprufur og hljómplötur
Um kortið

Ég tengi tónlist við liti og liti við tónlist. Þegar ég er að setja upp tónleika þá sé ég alltaf einhvern lit fyrir mér fyrir hvert lag.

Þegar ég var barn þá hlustaði ég á, svona að ég vil segja alvöru söngvara, alvöru raddir. George Michael, Aretha Franklin, Elvis Presley, Whitney Houston, Freddie Mercury, Tina Turner, allt þetta. Þetta voru svona dívur, sem kannski gerir mig að svona Divo.

Það gefur því augaleið að mínir litir eru skírðir í höfuðið á þessum dívum!

Friðrik Ómar, tónlistarmaður.

Friðrik Ómar með litaprufurnar og uppáhalds plöturnar
TURNER

Drottning rokksins! Gul-gyllti liturinn er kraftmikill og geggjaður með þeim bláa. Þessi er fyrir Tinu!

Kaupa málningarprufu

Gul-gylltur litur
Tina Turner sjálf á framhlið plötu sinnar
Friðrik Ómar í Eldborgarsal Hörpu
MERCURY

Mercury er skærasti liturinn í kortinu, einfaldlega af því að Freddy er skærasta stjarnan. Ljós litur sem passar með öllum hinum.

Kaupa litaprufu

Ljósgrár litur með ljúfum grænum tón
Kaffi og með því!
Plötuumslag Freddie Mercury
MICHAEL

George fær gráan tón, enda er slíkt vinsælt um þessar mundir. Friðrik myndi vilja hafa Michael uppi um alla veggi hjá sér.

Kauptu litaprufu

Ljósgrár tónn tileinkaður George
Plötuumslag Older með George Michael
Vinylplata sett á fóninn
PRESLEY

Elvis hefur fylgt okkur frá blautu barnsbeini. Hann er auðvitað kóngurinn og liturinn því blár. Blue Suede Shoes, einhver?

Kaupa prufu

Dökkur blágrænn litur í höfuðið á Elvis
Unnið í litakortinu við eldhúsborðið
Plötuumslag með Elvis á framhliðinni
HOUSTON

Whitney er flottasta og besta söngkona sem hefur verið uppi á plánetunni jörð! Hún á því skilið fagran, ljósgrænan lit sem hrífur.

Kaupa litaprufu

Ljósgrænn og fallegur litur
Tveimr menn mála, m.a. í kringum ramma
Houston sjálf framan á umslagi á vinsælli plötu sinni
FRANKLIN

Drottning sálartónlistarinnar er að sjálfsögðu með. Hún var beðin að vera guðmóðir Whitney, en afþakkaði. Hún er það samt í anda!

Kaupa litaprufu

Dökkgrænn litur úr litakorti Friðriks
Aretha sjálf framan á plötu sinni
Unnið í litakortinu
Fáðu þér litaprufu

Fáðu litinn sendan heim og prófaðu að mála hann á þínu heimili.

Valmynd