tribox image

Lunawood Decking - Thermowood

Áferð Therowood (Lunawood-D, greni) er ljósbrún en viðurinn er einnig burstaður. Þetta timbur er svansvottað,umhverfisvænt og sérlega endingargott. Faldar festingar tryggja fágað yfirborð því engin nagla- eða skrúfugöt eru sjáanleg. Viðurinn er varinn á þann hátt að hann verður síður fyrir formbreytingum eða rakaskemmdum.

 

Með hitameðhöndlun er ending pallaefnisins aukin án nokkurra íblöndunarefna. Thermowood þarfnast ekki viðhalds, jafnvel í óblíðri veðráttu eins og á Íslandi. En olíubera þarf hann reglulega eða nota á hann viðarvörn til að halda upprunalegum lit. Með tímanum tekur viðurinn á sig fallegan, silfraðan lit. Áætlaður endingartími Thermowood er allt að 30 ár.

 

Þótt viðurinn sé sagaður eða unnið með hann á annan hátt breytast ekki eiginleikar hans, þar sem allar fjalir eru meðhöndlaðar inn í kjarna. Þó ber að gæta þess að þegar unnið er með viðinn skal meðhöndla hann líkt og um harðvið væri að ræða, þótt hann sé mun mýkri og þægilegri í meðferð.

 
Verð:

Sjá verðlista hér að neðan.

Thermowood - Myndir

Vefkökur

Velkomin í vefverslun Byko. Þessi síða notar vafrakökur (e. Cookies). Það er til þess að tryggja eðlilega virkni og notendaupplifun. Með því að halda áfram notkun síðunnar, samþykkir þú notkun vafrakaka.