0
hlutir í körfu
Gagnlegar ábendingar:
- Ef bónið hefur staðið lengi, þá er gott að hrista það vel fyrir notkun. Hægt er að þynna bónið með því að blanda örlítilli terpentínu út í það, t.d. til að ná eftirstöðvum úr brúsanum.
- Gott er að nota rakan klút, við að bera bónið á, því það kemur í veg fyrir að klúturinn dragi óþarfa bón í sig. Notið aðeins hreinan klút til þess að bera bónið á. Lélegur tvistur getur reynst varasamur, því menn hafa lent í því að járnsvarf leyndist í honum.
- Eins og með öll önnur bón þá er ráðlegt að bóna bílinn í forsælu. Of hröð uppgufum getur auk þess dregið úr bindingu og endingu bónsins.
- Það er gott að bera vinylvörn á gúmmílista og óslípað plast, áður en bónað er. Þegar bónið þornar á sér stað efnahvarf, sem veldur því að það bindur sig mjög fast við gúmmí og hrjúft plast. Ef ekki hefur verið borin vinylvörn á þessa staði, eða þeir þrifnir með slíku efni eða terpentínu, innan 6 tíma, þá getur þurft öflugri hreinsiefni. UltraGlozz þvæst hvorki af lakki bílsins með tjöruhreinsi né terpentínu, eftir að bónið er full harðnað (ca. 12-24t).
- Bestur árangur næst með því að bóna við hitastig, sem er yfir 10 gráðum eða meir. Ekki skiptir máli hvort bónið er látið þorna 15-20 mínútur eða heilan sólarhring, það er alveg jafn auðvelt að þurrka það af.
- Vegna þess hve bónið endist lengi, þá er þetta í rauninni eina bónið sem vit er í að nota á sendibíla, húsbíla, húsvagna o.þ.h. þar sem mikil vinna er lögð í að bóna stóra fleti. Eins er þetta mjög gott bón á vinnuvélar.
- Ef til stendur að lífga upp á útlit bíla með möttu, veðruðu lakki, þá er gott ráð að blanda 2 hluta af bóni með 1 hluta af slípimassa af næstfínasta grófleika. Þetta flýtir mjög fyrir og lakkið verður eins og nýtt. Þetta á einnig við um veðraða plastbáta. Eins virkar þetta vel á rúður sem orðið hafa fyrir því að sementstaumar úr steiningu hafa náð að mynda tauma í glerið.