Leiðbeiningar til að versla á byko.is

Vefverslanir eru oft mismunandi að uppbyggingu. Til að auðvelda notendum skrefin má hafa eftirfarandi lista til viðmiðunar:

  1. Listi yfir vöruflokka er efst vinstra megin undir “Vefverslun”. Þegar að smellt er á vöruflokk birtast undirvöruflokkar eða vörur eftir því sem við á.
  2. Til að kaupa viðkomandi vöru er smellt á “Setja í körfu” eða smellt á mynd af innkaupakörfu.
  3. Þær vörur sem settar hafa verið í körfuna birtast vinstra megin fyrir miðju undir “Karfa”.
  4. Þegar búið er að velja þær vörur sem kaupa skal er farið í “Ganga frá pöntun”  sem birtist undir körfunni og yfirfarið hvort réttar vörur og magn hafi verið valið.
  5. Næst eru viðskiptaskilmálarnir lesnir og hakað í þartilgerðan kassa.
  6. Að lokum er farið í “Ganga frá pöntun” eða “Aftur í verslun” ef versla á meira.
  7. Þegar búið er að ýta á "Ganga frá pöntun" hefst greiðsluferlið. Kaupandi þarf að gefa upp kennitölu sína í reitinn kennitala. Vefverslunin er tengd við þjóðskrá og sækir þar af leiðandi nafn og heimilisfang kaupandans. Ef rangar upplýsingar koma upp þarf kaupandi að leiðrétta þær. Einnig þarf kaupandi að gefa upp netfang sitt. Því næst er farið í "skref 2"
  8. Skref 2 er greiðslu- og sendingarmáti. Kaupandi getur valið hvort varan sé sótt eða send með póstinum. Einnig getur kaupandi valið hvort sé greitt með kreditkorti eða millifært í banka. Því næst er farið í "Skref 3"
  9. Skref 3 er pöntunarstaðfesting. Kaupandi þarf að fara vel yfir pöntun sína og athuga hvort allar upplýsingar séu réttar. Því næst þarf að yfirfara pöntunarskilmála. Síðasta skrefið er að staðfesta pöntun.
  10. Kaupandi fær senda staðfestingu á pöntun sinni senda á netfangið sem gefið var upp í greiðsluferlinu. 

 


© BYKO 2009 | Skiptiborð BYKO : 515-4000 | Þjónustudeild: thjonusta@byko.is